My game..!
20.01.2008 01:31:35 / bazookas

19 ára

Mín búin að eiga afmæli og alles og bara ekker búin að blogga!...allavega þá er ég orðin 19 ára og hélt smá afmælispartý hérna heima hjá múttu fyrir vini og vandamenn. Því miður þá komust ekki allir en það slapp til, stemmingin var fín og bjórinn kláraðist allavega!..skemmti mér mjög vel eins og alltaf þegar ég á afmæli, planið var nú að fara síðan niðrí bæ en það klikkaði eitthvað..:S daginn eftir var ég svo þunn eða eitthvað að ég fór bara í matarboð, heim að horfa á mynd og sofnaði svo bara.

Þessi helgi var líka ansi vel heppnuð, ég og sölvi fórum í ljós...hlupum í ríkið til að ná fyrir lokun og svo á vídjoleiguna á föstudaginn og vorum svo bara um kvöldið að horfa á mynd og drekka beilís eða hvernig sem þetta er nú skrifað!...í millitíðinni skrapp ég í garðabæinn og náði í hillusamstæðuna og passaði hana geeðveikt vel alla leiðina. Svo komum við heim ég og fóstri með stæðuna og hann sagði mér að taka glerhurðina ég bara...okay. Svo þurfti ég auðvitað að opna og ætlaði bara að gera það með glerhurðina í annari en hann sagði mér að setja hana niður svo hún myndi ekki brotna. Svo setti ég hana niður ekkert smá rólega og allt en NEINEI skipti ekki neinu um leið og hún snerti jörðina smallaðist hún í svona þúsund mola!!:^) aulinn ég... ! já vá við horfðum á þarna mydina með adam sandler og feita gaurnum úr King of queens..ekkert smá fyndin allavega hló ég allan tíman:D Svo fór eg á laugardaginn og fékk mér bjór Gísla...við krössuðum pleisið hans ragga(mitt) og fenum okkur bjór mð honum..kalli litli var þarna lía og siggi tjiller. Mjög fínt, fórum svo niðrí bæ á glaumbar og hitti svooo mikið af fólki. Krissi elskan var þarna með Einari Torfa dúllu sem ég er ekki búin að hitt í eitt og hálft ár eða eikkað. Svo Þurý og Helga skvísur og einhverjir fleiri sem ég man ekki eftir vegna drykkju minnar:P...Fínt að fara niðrí bæ ekki gert það í langan tíma..dansaði alveg alla nóttina með strákunum.., hélt svo eg hefði týnt helv. lyklunum þannig ég gisti í gömlu íbúðinni minni, varð að segja bæ sko..á eftir að sakna holunnar smá en ekki tímanum þar neitt beint. Hefði betur átt að hlusta á sjálfa mig seinasta sumar þegar lítill gaur sat allt í einu á öxlinni minni og sagði að þetta allt saman væri ekkert sniðugt..hann sagði" yo girl..hulstrið er svosem okay u know en diskurinn er ekki að gera sig, drífðu þig burt!!" hefði betur hlustað á gæjan af þvi þá væri ég kannski komin eitthvað lengra af því ég var komin með þetta allt á hreint eftir ástina mín þá..tók sjálfa mig taki og var á góðri leið en þá verður maður að vera með fólki sem er það líka. Þetta setti mig bara á byrjunarpunktinn aftur en leiðin er greið held ég í bili..meðan ég held mig við að tala við fólk sem gefur góa strauma;)..Kláraði líka að ná í allt draslið mitt í gærkvöldi..bara nokkuð sátt með það:!::).. en já nóg um það!

Benny bennassi um helgina, verður geðveikt ...fer á mrg og kaupi miða á kappann. Svo var einhver herramaður að bjóða mér út að borða á föst., já alveg satt út að borða...hélt að strákar væru hættir öllu svona en gott að heyra að það eru einhverjir þarna úti..svona algjörir séntilmenn;) svo verð ég að segja ykkur frá því að ég fór í tíma hjá einkaþjálfara áðan :D og er að fara að fá mér kort á föstudaginn..já nú verð ég sko dugleg:P...en nú ætla ég að skríða uppí rúm og lúlla mér því ég er ekkert eðlilega þreytt...

góða nótt;*;*

 

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 23:15:16 / bazookas

Snjókorn falla....fullt af þeim líka!!

Já hæ!.. Já hef það fínt takk fyrir!8)allt gengur sinn vanagang, skólinn, vinnan o.s.frv.! Ekkert smá ánægð með nýja skólann.. og fögin sem ég er í. Er í tveim teiknitímum, myndlistarsögu og þýsku og stærðfræði..rosa fínir kennarar líka flest allir þó svo ég sakni kennaranna úr fg:( Svo er ég búin í skólanum tvisvar í viku um hádegi og fer þá að vinna á leikskólanum..rosa gaman að mæta svona sjaldan í vinnuna, krakkarnir alltaf svo glaðir að sjá mann:D engin smá knús og kossar sem maður fær sko!.. var að klára að kaupa mér skólabækur í dag og keypti nýja skólatösku, jeeij...búin að vera með hina síðan alveg í 7 bekk og búið að krota alls konar gelgju dóterí á hana..fegin að fá nýja:lol:

Rakst á þessa mynd..væri soldið spes ef þetta væri hægt, fjöllin myndu sennilega fyllast;)..

Helgin hjá mér var alveg frábær held ég að ég geti fullyrt..! Ætlaði nú niðrí bæ á föstudaginn að djamma en það nennti nú enginn með mér þannig ég bara kíkti til sölva og hélt við myndum bara fara að horfa á spólu og eikkað en neinei fengum okkur bjór og fínerí...sátum og spjölluðum alla nóttina og svo kom tinna vinkona hans og var memm!..hljómar kannski ekki vel en ég skemmti mér nú samt sem áður mjög vel og var ekki farin að sofa fyrr en seint og síðar meir. Á laugardaginn kom Guðni og sótti mig og vá ég bjóst ekki við neinu spes það kvöld en svo komum við heim til hans og Addi þarna og Sigurgeir...þannig við redduðum okkur áfengi á no time og vorum farin að skemmta okkur ansi vel!...svo bættist nú í hópinn og systir Adda Maja kom og Sindri félagi hans og við sátum og djúsuðum alla nóttina og fórum í pottinn 8)....gaman að kynnast nýju fólki og svona!...jáw svo tók ég strákana í smá vöðvanudd greyin bakið á þeim í hakki...og ljóskan ég notaði brúnkukrem þannig hendurnar mínar eru ennþá svartar8|... guðni dúllan búin að lofa mér fari heim en svo fer hann í vinnuna og ég geðveikt föst í hafnafirðinum og enginn neitt á leiðinni að sækja mig. Addi krúttið sko í kópavogi reddaði mér svo kom og skutlaði mér heim klukkan níu á sunnudagskvöldinu þannig ég er búin að vera úrvinda alla vikuna!..

 

En það verður víst ekki mikið slappað af um helgina af því að hún ég á afmæli á sunnudaginn!! og held smá vinapartý eins og seinustu tvö ár hérna heima. Svo verður farið nirðí bæ og svona. Þetta bregst ekki...alltaf gaman á afmælinu mínu og alltaf takmarkið að hafa meira gaman en á seinasta ári þannig þetta verður hellað!!;) ætla að reyna að fara í kringluna á mrg og eikkað, kaupa mér afmælisdressið og svona:haha: hlakka líka til að koma öllum hópnum saman, sumir sem maður er búinn að hafa of lítið samband við og svona!..SVO ER ÞAÐ SNJÓBRETTI Á SUNNUDAGINN TAKK FYRIR!...verð líklega of þunn á laugardaginn ...oooo mig langar svo í snjóbretti!!!:P. en já anyways hitti einmitt Kareni áðan, fór með henni og Camillu á rúntinn og spóla í snjónnum á planinu rétt hjá sæbrautinni. Fullt af fólki...hehe hún er nú samt ekki alveg með þetta á hreinu búin að vera með bílpróf í mánuð og bílinn sinn í tvær vikur...ekki það að ég sé eikkað góð í að drifta  í snjó:$ jæja ég ætla að fara að lúlla mér er alveg fáránlega þreytt.... lúlli lúll..góða nótt

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.01.2008 13:03:54 / bazookas

Fall..

Nú er ég komin á einhvern stað í lífinu sem ég vil helst ekki vera á, nú þarf ég aðleita svo djúpt inní sjálfri mér og á öðrum stöðum til að fá svör og leiðbeiningar um framhaldið. Ég gat ekki sofnað í nótt af því hugurinn fór alltaf á sama tímapunkt..til að reyna að finna út hvað var að fara í gegnum hugann akkúrat þarna og af hverju þetta gerðist. Ég skil smávegis en sérfræðingarnir verða að útskýra restina fyrir mér. Ég veit hvað ég þarf að gera, þessi púki verður að fara og ég er byrjuð að vinna í því að reka hann burt...hehe fight the evil8) Nú er bara að hugsa vel um sjálfa sig og láta fólk sem hefur vond áhrif alveg í friði. Svo er skólinn að byrja í næstu viku, það verður fínt:DÉg ætla að taka þetta allt af meiri alvöru en ég hef gert og geraþað sem ég hef alltaf átt að gera8) hlakka bara til að sjá hvað gerist en það verður ekkert nema gott!:$

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 18:38:54 / bazookas

Jól!

Gleðileg jól allir saman:haha: ekkert búin að blogga og ákveð svo að blogga á aðfangadagskvöldi...já, nei ég er ekkert búin að komast í tölvu þar sem ég er flutt að heiman og ekki komin með netið og er auðvitað hérna heima hjá mömmu í kvöld og er að bíða eftir að hún sé búin í baði svo við getum borðað8) lambahamborgarahrygg...slúrp! Annars hef ég það rosalega fínt í nýju krúsídúlluíbúðinni minni sem ég er að leigja með yndinu mínu! ég er komin inn í fb og bara farin að hlakka til að byrja!..jæja nú ætla ég að fara og kveikja á öllum kertunum og gera kósý stemmingu..hafiði það sem allra best á jólunum elskurnar mínar vonandi sé ég eitthvað af ykkur yfir jólatímann;)

kv.ALFA


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.11.2007 20:44:16 / bazookas

FINALLY!

Loksins loksins komnar myndir inná síðuna...þær eru allar á snapfish link sem ég set inná og albúmin eru til vinstri, danmörk, símamyndir og svo gamalt. Komu óvart inná nokkrar myndir af litlu frænku minni..! en já svo set ég restina inná i vikunni!...njótið;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 18:03:37 / bazookas

waazup homies..

Já hæj!:D mikið er ég búin að sakna ykkar!.. allt gott að frétta hjá mér, vinna Á FULLU... stoppa ekki á daginn það er svo mikið að gera...já á leikskóla!.. erum að föndra svo mikið og búa til dagatal handa foreldrunum semsagt krakkarnir og það eru 12 myndir sem 30 börn þurfa að gera og svo allt jólaföndrið!:.. og þessir krakkar þurfa einhvern yfir sér allan tíman þannig er það bara. En það er allt í lagi.. farið að þykja bara mjög fínt að vinna þarna og svo vænt um litlu krílin!.. jáw alveg rétt Tiesto...það var fjör, hefði getað verið meira fjör en víst lítið hægt að gera í því. Geðveikir tónleikar og geðveik stemming en bara alltof fkn troðið til að vera þarna og svo eins og venjulega er ég svo heppin að lenda inní slagsmálum..ekki taka þátt sko heldur koma tveir alveg nett brjálaðir gaurar og detta á mig alveg tvisvar!...annars hitti ég fullt af fólki sem ég var ekki búin að sjá lengi og svona þannig þetta slapp fyrir horn!...annars er ég ákveðin í að fara aftur á hann úti og þá stærri og flottari tónleikum þar sem fleiri koma fram með honum!

Síðan er ég náttúrulega á fullu að læra eins og ég segi ykkur alltaf..:$ núna er samt deadline bara tvær vikur í prófin þannig ég verð að standa mig. Svo er ég bara kannski að fara að skipta um skóla eða svona eiginlega alveg pottþétt!..sé það bara í hendi mér að ég hafi nkl ekkert að gera aftur í fg þar sem ég bý í breiðholtinu og jaw fleiri góðar ástæður. Samt á ég eftir að sakna kennaranna svo..! Þannig stefnan er tekin á FB! og hver veit hvaða braut..kemur í ljós. Svo ætla ég að fara að hressa mig soldið upp og koma með góða skapið aftur sem ég var með í allt sumar. Skapið ekki búið að vera uppá sitt besta en það kemur með jólaljósunum og smákökunum:haha: OG mikið vooona ég svo að það verði hvít jól¨!!!!!!!!

 

Jólin já.. fer að styttast!...ætli það sé ekki best að fara að kaupa jólagjafirnar bara snemma og vera búin með þetta allt svo maður sé ekki í stressi á seinustu stundu!...en ég meina..segir maður þetta ekki hver einustu jól?:D eitt sem ég veit og það er það að mig langar í skó...og meiri skó!..langar að fara út og kaupa mér skó, komin með hundleið á að vera í eins skóm og allir aðrir á þessu skeri..! skór á óskalistann í ár!..og endilega setjiði inn í komment hvað ykkur langar í í jólagjöf..! annaðhvort bara uppá funnið eða ef þið eruð með það á hreinu eða svona nokkurnveginn allavega að ég gefi ykkur gjöf..ég er nú einu sinni frekar gjafmild manneskja;) Svo er það helgin, ætli það verði nokkuð djammað..:$ segi þetta nú um hverja helgi enda samt oftast á einhverju djammi. Se what happens. Jæja er þetta ekki komið gott..ætla að hætta áður en þetta fer útí eitthvað mun óáhugaverðara:haha:

Se ya'll8)

p.s. langar illa mikið í dreadlocks...

 

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.10.2007 19:32:34 / bazookas

Laugardagsblogg..

Ætla að henda inn smá bloggi til merkis um að ég sé á lífi!...langt síðan ég hef bloggað og margt búið að gerast síðan þá;) kíkti í mat til pabba seinustu helgi og hitti systkinin þar en systir mín er að fara að flytja aftur út til danmerkur, mjög gaman að hitta þau enda ekki oft sem við hittumst. Pabbi var bara sprækur og ég var ekkert smá ánægð að sjá það þannig þetta er allt að koma. Annars ekkert svona spes samt nema þá bara djamm og svoleiðis. Skemmti mér alveg rosalega vel með henni Lillu Lú um seinustu helgi og þyrfti eigilega að búa til sér blogg um það! er að taka því aðeins rólega þessa helgi til þessa að geta mætt endurnærð !...samt bara aðeins, er að fara að kíkja í heimsókn uppí breiðholt en þar er ég búin að eignast nýjan "bróður" og hver veit svo hvert kvöldið leiðir mann:) Svo er það DJ TIESTO næstu helgi en ég er auðvitað löngu búin að tryggja mér miða á hann:!: þá verður sko djammað!.. Raggi á afmæli á mánudaginn..ætli ég verði ekki að bjóða honum uppá kók og pullu og jafnvel einn laugara:D.. vill svo koma því á framfæri hvað ég elska ykkur öll alveg ótrúlega mikið..belive it or not og setjiði nú einhver komment svo ég viti hverjir séu að fylgjast með mér;) Fariði svo hægt inn um gleðinnar dyr og ekki gera eitthvað sem ég myndi alls ekki gera:haha:

 

partýkisi=)

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 17:43:40 / bazookas

Yes dear..

Djöfull er ég orðin léleg í að blogga!...get bara alltaf fundið eitthvað betra að gera..en jáw. Búið að vera brjálað að gera hjá mér og þá meina ég það!..er alltaf að vinna til fimm eins og venjulega, stundum til sjö og neeeei þarf ég þá ekki að koma heim og gjöra svo vel að setjast á rassinn minn og LÆRA og læra og læra. Ég sest alltaf niður og reyni að læra en það er happa glappa hvað ég næ að læra mikið vegna þess að ég er alltaf alveg að sofna eða bara með hugann allt annars staðar. Er samt örugglega búin að læra meira heima en ég gerði á allri seinustu önn svona í alvörunni þannig ég get verið nookkuð sátt með mig:) ...hélt ég væri bara orðin eitthvað dummy ekki búin að læra neitt síðan ég byrjaði í menntó eiginlega en þetta er þarna ennþá, bara að virkja það aftur;)

Seinasta helgi var auðvitað bara algjör snilld:!: Fór heim til Lindu á föstudagskvöldið að djúsa, kósý as usual og fórum svo niðrí bæ en nei hænan ég dó auðvitað niðrá glaumbar og hafði það kósý inná klósti meðan Linda og Hafrún voru frammi að standa í einhverjum gæjum:$ Þetta er það eina sem ég man en svo gerðist víst ýmislegt sem ég man ekki eftir þannig ég sleppi því bara. Á laugardaginn fór ég svo og verslaði mér eitt par buxur og bol, fann líka úlpuna sem mig langar í en nei þá var hún einu númeri of stór!...er samt staðráðin í að finna hana þá bara á netinu eða eitthvað. Svo hringdi Sölvi í mig..já Sölvi!...búinn að vera týndur í þrjá mánuði eða svo, og hann bað mig að djamma með sér þannig auðvitað gerði ég það, búin að sakna hans alveg nóg!.. Fórum heim til Zum(veit ekki alveg hvernig ég skrifa það;) og vorum þar fyrst en fórum svo í neðra breiðholtið til félaga hans Hlyns. Kærastan hans var þar líka og eitthvað kannaðist ég nú við hana...nei þá vorum við saman í vatnaskóg fyrir allavega fimm-sex árum að leika okkur saman þannig gaman að endurnýja kynnin:haha:...svo bættust raggi og gísli í hópinn soldið mikið seinna og var djammað þangað til 8 eða 9 um morguninn enda var ég ansi ónýt þegar ég vaknaði klukkan hálf sex á sunnudeginum!...og þessi helgi átti að fara í að læra, obbs! Þess vegna er þessi vika búin að vera svona andskoti leiðinleg, bara vinna og læra og ekkert þar á milli.

Ohh mig langar samt svo á skíði eða snjóbretti að það er ekki fyndið!...Ég myndi neflilega ELSKA að búa á þessu blessaða landi ef það væri nóg færi á veturnar ekki bara rigning og endalaust rok! Er jafnvel að pæla í að safna mér fyrir einhverri heví næs ferð eftir áramót, kannski um páskana eða eitthvað. Fara í Alpana eða bara til Noregs á eitthvað flott og kósý hótel...verður að vera gufa!...Taka mp3 spilara með, góða bók og sundföt og bara slappa af for once!..er orðin þreytt á þessu eilífa djammi þótt ég sé eiginlega orðin háð.

Annars gengur mér bara nokkuð vel að snúa blaðinu við með sjálfa mig, er í stöðugri sjálfskoðun að passa sjálfa mig eins og lítinn krakka að ég fari mér og þar af leiðandi öðrum ekki að voða!..gaman að haga sér vel og gera rétt í hlutunum, manni líður mun betur fyrir vikið! Myndi langa að vissar manneskjur, sérstaklega ein myndu sjá það að skapið mitt og framkoma er búin að batna til muna!...Alveg ótrúlega fyndið að hugsa til þess hvað viðhorf mín til lífsins og já líka dauðans eru búin að breytast, þessi verslunarhelgi hjálpaði mikið til:klikk: Samt rosalega sad að pæla útí lífið stundum, ætla nú ekkert að fara neitt dýpra útí það en þrátt fyrir það þá er ég sáttari með allt og geri allavega það besta úr lífinu vegna þess að ég get ekki breytt því hvernig þetta allt er. Gott með það.

Næsta helgi verður eitthvað spes...hlakka mikið til!8)

Þangað til næst hagið ykkur sómasamlega og gerið ekkert sem ég myndi ekki gera;)

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.09.2007 22:01:51 / bazookas

Barbí

Sorry hvað ég er búin að vera löt að blogga...hér kemur allavegana eitt=) Jáw...ég hef það bara fínt, er byrjuð Á FULLU í fjarnáminu, sem þýðir að ég geri ekki mikið meira en að fara í vinnuna, koma heim og læra.:lol: Eeen nú er helgi þannig ég nýtti tækifærið og djammaði smáá á föstudaginn, kíkti í innflutningspartý til hennar lindu minnar, en þar voru nokkrar af stelpunum hennar, Sigga systir hennar m.a. og ég slóst í för með þeim með nokkra bjóra í hönd og ég get svo svarið það að ég hef aldrei orðið jafn full af nokkrum bjórum..sem er bara gott;)...minni kostnaður fyrir mig! 8)En eins og ég sagði þá var þetta fínt partý..landakokteilar og svona fínerí. Kíktum svo uppí breiðholt á mömmmu hennar...don’t know why..en það var nú bara kósý og svo var haldið niðrí bæ. Tókum taxa og planið var víst að sleppa á einhvern  undraverðan hátt við að borga hann en ég á mínu háu háu hælum ákvað að það væri ekkert sniðugt, nennti ekki að lenda í einhverju veseni og borgaði grey kallinum. Svo ætluðum við inná glaumbar en nei þá komst ekki ein af okkur inn og vesen og svo aftur og aftur þannig mér var orðið alveg vel kallt og ákvað að fara heim. Þannig við fórum tvær heim, fengum far hjá Skara Team GDZ og ég fór upp og náði einhvern veginn að búa um rúmið mitt og allt í því ástandi sem ég var...!(hefur verið verra)..but anyways takk fyrir kvöldið linda mín;* fór í gær niðrá tattoo stofu til að athuga með tattooið mitt hvort það sé ekki hægt að flikka aðeins uppá það. Komin með tattoo dellu í hausinn og langar ekkert smá í annað...! raggi heldur að honum sé að takast að láta mig fá mér dreadlocks sem er ekkert að fara að gerast!!..=) dream on...eða þannig. Ætla samt fljótlega að breyta eitthvað til með  hárið á mér...spennandi að sjá hvað það verður. Fékk mér þynnkumat og sótti svo sólrúnu í vinnuna og við tjilluðum ásamt ragga og gísla allan gærdaginn...alveg heví kósíJ ...fór svo frekar snemma að sofa á laugardagskvöldi miðað við venjulega...vissi ekki um neitt svaka djamm þannig..! og vaknaði svo útsofin snemma í morgun, fór í sund og var þar í dágóðan tíma í nuddi og fór á bókasafnið að fá lánaðar námsbækur til ég geti verið dugleg. Fór síðan í bakarí og keypti mér besta kleinuhring sem ég hef smakkað! 8|Borðaði svo annan þegar ég kom heim...J og er að elda flottan dinner núna...mamma er að kenna mér að elda flott. Þá er það bara næsta vika í vinnunni og skólanum framundan, vera duglegur og svo fæ ég útborgað bara fyrir helgina held ég þannig það verður DJAMMAÐ!... og Linda þú kemur memm!:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.09.2007 19:02:49 / bazookas

Kuldaboli beit mig í rassinn

ÁÁTS!:....ekki sátt að það sé kominn þessi skítakuldi í byrjun september, fer út með börnin á daginn og þarf að horfa uppá þau minnstu fjúka um koll í rokinu og alveg öll ómöguleg í rigningunni... eeeen það var sól í dag, þannig ég er allavega eitthvað sáttari:D !..vonum að það fari að koma svona milt og gott haust, þá get ég farið út að hlaupa og svona:lol:..

Jæja ég er formlega komin inní fjarnámið, fékk sent bréf heim!...nú er það bara að standa sig og renna ekki á rassinn með þetta eins og ævinlega!..bara að hugsa jákvætt og hafa áhuga á því sem maður er að gera og þá gengur það. Sakna nú samt skólans óttalega og hlakka til að koma eftir áramótin!...maður fattar það þegar maður byrjar að vinna hvað það er kósý að vera í skóla. Annars er ég alveg fáránlega sátt með vinnuna mína...LOVE IT!...þessar krakkarúsínur sem breytast svo í krakkaandskota eftir því sem líður á daginn..;)

Úff hvað mig langar að fara að gera eitthvað skemmtilegt...fara á krossara eða eitthvað.. verð nú að byrja einhvers staðar fyrir mótórhjólið næsta sumar:) er búin að prufa vespu eða hvað sem þetta heitir útá spáni í sumar..en það er nú bara sneið af köku held ég miðað við margt annað. Allt sem kemur adrenalíninu af stað og gerist úti það er gaman!...Já heyrðu nú man ég eftir svolitlu sem ég get hlakkað til.....litla barnið mitt hún Búbbulína(my bunny) á von á sér!!!:haha: trítill(my old bunny) krútt kíkti nebbla í heimsókn fyrr í vikunni þannig nú er bara að bíða og sjá..;) endilega látið mig vita sem vilja kanínuunga í jólagjöf!!

Svo er það bara djamm á föstudaginn ...semsagt á morgun!...þarf nefnilega því miður að eyða restinni af helginni í lærdóm. En ég hef bara ekki hugmynd um hvað er í gangi í bænum og svona um helgina, og já endilega látið mig vita ef þið eruð með partý...eða vitið um(sénsinn)=)..

bless á meðan honeybunns;*;*


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.09.2007 17:44:13 / bazookas

Chris Lake..

Já, ekkert smá skemmtilegt kvöld á föstudaginn...byrjaði á að fara heim til deildarstjórans míns og drekka með henni og hinum konunum á leikskólanum...svaka stuð!8) svo sóttu Anna Rósa og Særún..mig og lindu heim til hennar og við vorum orðnar ansi góðar á því!..þurftum svo að ná í skilríki fyrir særúnu og skjótast aðeins þannig það tók smá tíma en svo loksins klukkan 1 eða hálf tvö komum við niðrá brodway!...hitti Gunna bróður og Pál Svavar frænda minn um leið og ég kom inn, báðir dauðadrukknir og héldu engar smá ræður yfir mér8| allt í lagi með það, kíkti niður og hitti Sturlu..bróður hans Ragga..en ég var svo útúrgóð á því að ég varð að fara að dansa en var búin að týna lindu og særúnu þannig ég fór bara ein..! hitti síðan Jonna...ekki búin að sjá þann dreng bara í alltof langan tíma. Fór út að leita að særúnu og lindu af því ég var alltaf að týna þeim og þar var einhver gaur að taka myndir af mér á fullu!...þannig ég fékk að hringja hjá honum og fór svo bara inn og fattaði svo þegar ég var komin inn að ég var  með símann hans en fann hann svo ekki:!: ...greyið..en já var heví gaman, var mest allan tíman með Gunna samt en það var okay!...sníkti taxa heim með honum og eitthvað...

en já Þurý var að hringja og símagæinn talaði við hana um að einhver gjella hefði óvart tekið símann hans og hann vantar hann svo til að fá símanúmerin sín þannig hann bauð okkur miða á TIESTO!...æji dúllan hefði nú alveg látið hann fá hann ókeypis en fínt samt að fá miða;)... takk æðislega gæjinn sem á símann..!

En já svo hitti ég bara ragga og gísla í gærkvöldi og við höfðum það kósý og svona og svaf alveg heví lengi í dag..eða til tvö í dag:$ er að baka köku og svona kósý og ætla að hitta Þurý elskuna í kvöld en við verðum að fara að hittast meira þurý:!:;)

farin að taka kökuna útúr ofninum bæjó;*

p.s. leave a coment


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.09.2007 17:55:56 / bazookas

Djamm!

CHRIS LAKE Í KVÖLD.....!! verður hellað , er fyrst að fara í smá gathering hjá deildarstjóranum með öllum kjellingunum og svo bara beint á chris lake...:haha:

           SÉ YKKUR ÞAR;)

svo er það náttla chris cornell á mrg...8)

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 17:39:11 / bazookas

Djamm og aftur djamm..

Ætla nú bara rétt að segja frá helginni en hún var bara heví fín8) Ætlaði mér nú reyndar að vera edrú alla helgina og slappa bara af...en það snérist í gagnstæða átt þegar Linda bauð mér með vinkonum sínum út að borða og svo á djammið á föstudaginn. Hún og Hafdís og Kidda sóttu mig kl. hálf átta og við sóttum eina aðra og vorum komnar niðrá Hornið( veitingastaðurinn ) soldið seint en  þá var kl. að verða níu og þá var ekki einu sinni laust borð fyrir okkur þannig við þurftum að bíða...! en það var nú allt í góðu..fengum okkur bara drykk á meðan:D en já eftir pizzu og pasta röltum við á viktor og byrjuðum að drekka þar, ég, linda, hafdís og kidda. Kidda beilaði svo stuttu seinna en við hinar héldum ótrauðar niðrá Amster og sátum þar í smá stund í drykkjuleik;) Að lokum fórum við niðrá gauk og djömmuðum þar þangað til ég var orðin svo alltof drukkin að ég fékk far heim með særúnu systir Hafdísar en Linda og Hafdís djömmuðu áfram8|...  takk fyrir kvöldið sætu;)

Djöfull var ég svo þunn þegar ég vaknaði á laugardaginn og ætlaði sko EKKI að djamma:!: Fór í matarboð til pabba, óli bróðir kominn frá Bandaríkjunum í heimsókn og gaman að hitta hann, Silla systir líka ásamt fjölskyldu. Horfði svo á mynd um kvöldið minnir mig...var bara afslöppuð og hittum svo gísla í sígó við skúrinn. Þá fór fullt af fólki að týnast úr partýi sem var við hliðina á ragga og ég hitti heiðu og torfa sætu;* og hildi berglindi:) þá var klukkan tvö eða hálfþrjú og ætlaði nú bara heim að sofa en það fór þannig að við kíktum heim til adda. Þar voru addi og gjellan hans Svandís, Gísli (bróðir Adda) og Gísli (gísli) og svo auðvitað ég og raggi. Ætlaði nú bara aðeins að fá mér í glas en endaði með Absent fylleríi og ég endaði dauð á sófanum:$ fékk nú samt að vita daginn eftir að allir hinir hefðu dáið rétt á eftir mér þannig mér leið aðeins betur við það. Fórum svo í sund með Adda og Svandísi og lituðum hárið á ragga.......var svo alveg búin og fór snemma að sofa!

Svo er það Chris Lake á föstudaginn!!!!...spurning hvort maður skelli sér svo á Chris Cornell á Laugardaginn..?8) Allavega frábær helgi og takk fyrir gistinguna addi:haha:

 

Hafdís, Linda sætu og ég;*


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 17:57:34 / bazookas

fuuuuuuuuuuck

Alveg ótrúlegt hversu mikið hatur getur rúmast fyrir í einni manneskju, allaveg nóg hatur í mér þessa dagana til þess að gera einhverjum og ekki einhverjum eitthvað virkilega slæmt:!:...væri alveg þess virði ef ég fer að hugsa útí það en þar sem ég er betri og þroskaðri en það þá heeld ég að ég láti allt hatur vera...læsi það niðrí kistu og hendi lyklinum oní sjó. Eeeða noti þessa fáránlegu orku í eitthvað svakalegt...spurning?

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 18:03:48 / bazookas

back in black

8)!!!!!!!!!!!!!!!! Nóg komið af eymd og volæði...! Hætt þessu ands****** rugli og farin að gera eitthvað af viti, tími til komminn! Jæja ég er byrjuð í nýju vinnunni minni, búin með heila viku meira að segja...ógisslega gaman!...æðislegir krakkar, ekkert smá kósý og lítill leikskóli og stelpurnar sem eru að vinna með mér eru æði....svo ekki sé minnst á bossinn minn, hún er nú bara snilld. Vá tekur samt alveg heví á að passa þessa orma, tala nú ekki um þegar einhver af okkur er veik. Er að taka mig á í að vera hörð og skamma þau af því ef ég geri það ekki strax þá vaða þau bara yfir mig!...en þetta kemur allt saman!

Skellti mér á djammið með henni Lindu babe á föstudaginn og tveim vinkonum hennar!...Valgerði oooog sjit man ekki, var ansi blekuð8| en já ein var að keyra og við hinar bara að drekka á rúntinum...ég(hænan) drakk alla bríserana mína(7 talsins) og var svo með tópasflösku sem linda hjálpaði mér reyndar með. Svo hittum við Jón, Fannar og bróðir hans sem btw er alveg eins og hann! ....þá var jón með tópasflösku líka og svo seinna um kvöldið hringdi hann og spurði mig hvort ég hefði tekið hana...ég bara ha nei glætan...hélt það sko og svo kom ég heim seinna um nóttina með tvær tómar tópas...sorry jón:haha: hittum svo einhverja vini hennar lindu...mjög næs gæjar þó svo að ég muni ekki nöfnin! en já svo fórum við á amster og greyið linda var orðin svo ógeðslega full að hún dó á klóstinu niðri!..skil ekki að ég hafi ekki dáið miðað við að drekka þó nokkra brísera og heila fkn tópasflösku..! en það hringsnérist samt allt og var heví ruined:$ linda var svo mikil dúlla á leiðinni heim...snillingur þessi stelpa. En já svo var haldið heim vegna óhóflegrar drykkju.

Daginn eftir hafði ég það bara kósý...Raggi kíkti með mér í smáralindina að gera ýmislegt og fengum okkur þynkumat, fórum svo í sund og jámm horfðum á mynd um kvöldið, hittum síðan kalla og svo bara lúllilúll;)  á sunnudaginn vorum við heima hjá ragga allan daginn eikkað að familiast með fjölskyldunni hans, hittum sigga og svo í bólið.

 Keypti mér ÓGÓ flottan síma í gær, þarna nýjasta walkman síman...mp3, myndavél og jámm bara heví græja...internet og allur andskotinn!...kostaði líka sitt:S een síminn minn var allur dottinn í sundur og bilaður greyið þannig hann fær að fjúka. Svo var ég svo óheppin að smitast af einhverji flensu frá systur hans ragga og lá í rúminu mánudagskvöld og í gær.....skrattaðist nú samt í vinnuna í morgun af því mér leið mikið betur og er alveg heeeeví þreytt núna og ætla að taka því róóólega8)

bæjó:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Dagsetning
23. febrúar 2012
Hildur - afm�?�?�?¦li
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1746 dögum
RSS tengill